Home Fréttir Í fréttum Ölvaður maður klifraði upp í 65 metra háan byggingar­krana

Ölvaður maður klifraði upp í 65 metra háan byggingar­krana

152
0

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í morgun tilkynning um mann sem kominn var upp í byggingarkrana í Bríetartúni.

<>

Að því er segir í skeyti lögreglu var maðurinn kominn upp í um það bil 65 metra hæð. Maðurinn náði að koma sér sjálfum niður en talsverður viðbúnaður var á vettvangi af hálfu lögreglu og slökkviliðs.

„Maðurinn var talsvert ölvaður og  gat hann ekki gert grein fyrir veru sinni þarna.  Hann var handtekinn og vistaður í fangageymslu,

Hann verður kærður fyrir húsbrot þar sem hann fór inn á lokað vinnusvæði, meðal annars,“ segir í skeyti lögreglu.

Heimild: Visir.is