F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í verkið:
Fellaskóli (unglingaálma) – Endurnýjun á þaki 2018, útboð nr. 14127.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 11:00, mánudaginn 15. janúar 2018.
Smellið á íslenska fánann neðst á útboðsvefnum til þess að fá vefsíðuna upp á íslensku. |
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 14:00 þann 1. febrúar 2018.
Verkið felst í:
Endurnýjun á þakjárni, þakpappa ásamt tilheyrandi frágangi og ef þörf er á skal endurnýja skemmda/fúna borðaklæðningu þaksins. Endurnýja skal allan frágang við þakglugga, loftstokka ásamt undirbyggingum og þaktúður.. Endurnýja skal a.m.k. einn þakglugga. Endurnýja skal loftstokka ásamt því að endurnýja þakpappa í þakrennum.
Verklok eru 15. ágúst 2018.
Helstu magntölur eru:
Verkþáttur: | Ein. | Magn: |
Rif og förgun (þakjárn, þakpappi og fylgihlutir) | m2 | 1350 |
Endurnýjun borðaklæðningar | m2 | 130 |
Endurnýjun þakpappa | m2 | 1330 |
Endurnýjun þakjárns | m2 | 1330 |
Endurnýjun þaktúða | stk | 10 |
Endurnýja loftræsistokka | stk | 2 |
Endurnýja þakglugga | stk | 1 |
Frágangur við þakglugga | m | 55 |
Endurnýja þakpappa í þakrennu | m | 150 |