Home Fréttir Í fréttum Fyrirhugaðar framkvæmdir á Djúpvegi, Norður-Ísafjarðarsýslu

Fyrirhugaðar framkvæmdir á Djúpvegi, Norður-Ísafjarðarsýslu

150
0
Djúpvegur Mynd: Vegagerðin

Vegagerðin hefur kynnt með fyrirhugaðar framkvæmdir á Djúpvegi, vegnúmer 61 (35/36), í Hestfirði, Seyðisfirði og Álftafirði í Súðavíkurhreppi, Norður-Ísafjarðarsýslu.

<>

Yfirlitsmynd

Fyrirhuguð framkvæmd er tvíþætt:

  • Endurbygging og nýbygging á um 7 km löngum vegkafla Djúpvegar, frá Leiti í Hestfirði að Eyri í Seyðisfirði.
  • Nýbygging á um 2,2 km löngum vegkafla á Djúpvegi um Hattardalsá í austanverðum Álftafirði með byggingu nýrrar brúar á Hattardalsá. Ný brú  verður 16 m löng og tvíbreið, staðsett um 0,7 km neðan núverandi brúar.

Fyrirhuguð framkvæmd, þ.e.a.s. vegagerð í Hestfirði og Seyðisfirði auk brúar- og vegagerðar í Hattardal, er samtals um 9,2 km löng.

Kanna þarf matsskyldu framkvæmdarinnar skv. 6. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum, viðauka 1, lið 10.09, þar sem hún liggur á köflum um verndarsvæði.

Vegagerðin telur að framkvæmdin hafi ekki í för með sér umtalsverð áhrif á umhverfið vegna umfangs, eðlis eða staðsetningar. Framkvæmdum verður hagað þannig að neikvæð áhrif þeirra verði sem minnst, mótvægisaðgerðum verður beitt og haft samráð við ýmsa aðila.

Meðfylgjandi er greinagerð með nánari upplýsingum um framkvæmdina:

Kynningarskýrsla

Teikningar

 

Heimild: Vegagerðin