Vegagerðin óskar eftir tilboðum í yfirlagnir með malbiki á Norðursvæði og Austursvæði árið 2015.
Helstu magntölur:
Útlögn malbiks | 3.330 | m2 |
Hjólfarafylling | 9.600 | m2 |
Fræsing | 1.510 | m2 |
Verki skal að fullu lokið 15. ágúst 2015
Útboðsgögnin verða seld hjá Vegagerðinni Miðhúsavegi 1 á Akureyri, Búðareyri 11-13 á Reyðarfirði og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með þriðjudeginum 28. apríl 2015. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 12. maí 2015 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.