F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í verkið:
Hólabrekkuskóli áfangi 4. Endurnýjun veðurkápu 2017. Útboð nr. 14058.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á nýjum útboðsvef Reykjavíkurborgar frá kl. 12:00, mánudaginn 4. september 2017á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á ,,Register“
Vakin er athygi á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 10:15 þriðjudaginn 26. september 2017.
Verkið felst í:
Endurnýjun veðurkápu á 4. áfanga Hólabrekkuskóla við Austurberg. Fjarlægja skal núverandi flísaklæðningu af húsinu, múra veggina og mála. Þá skal einnig endurnýja flóttahurðir úr áli og framkvæma nauðsynlegar lagfæringar á álgluggakerfi.
Helstu magntölur eru:
Verkþáttur Ein. Magn
Fjarlæging og förgun flísa m² 588
Múrhúðun m² 588
Endurnýjun á flóttahurðum stk 4
Sílanböðun m² 588
Málun veggja m² 588
Verklok eru 15. desember 2017.