Home Fréttir Í fréttum 26.09.2017 Hagaskóli. Endurnýjun nemendasnyrtinga 2017

26.09.2017 Hagaskóli. Endurnýjun nemendasnyrtinga 2017

60
0

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í verkið:

<>

Hagaskóli. Endurnýjun nemendasnyrtinga 2017. Útboð nr. 14057.

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á nýjum útboðsvef Reykjavíkurborgar frá kl. 12:00, mánudaginn 4. september 2017 á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á ,,Register“
Vakin er athygi á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar.   Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en:  kl. 10:00 þriðjudaginn 26. september 2017.

Verkið felst í:
Verkið felur í sér að endurnýja annan af tveimur kjörnum nemendasnyrtinga pilta og stúlkna í vesturálmu skólans. Um er að ræða niðurrif á skilrúmum og veggjum sem ekki eiga að verða eftir skv. nýju skipulagi sem og loftum. Niðurtekt núv. veggflísa og gera við veggi undir nýjar veggflísar. Rífa skal í burtu  allar núv. vatns-, hita- og frárennslislagnir og endurnýja þær. Brjóta skal raufar í gólf fyrir nýjum frárennslislögnum sem tengjast núv. lögnum. Endurnýja skal öll hreinlætistæki á snyrtingunum. Allt rafmagn og lýsing er rifin niður og endurnýjuð. Loftræsing á snyrtingum er endurnýjuð.

Helstu magntölur eru:
Verkþáttur                              Ein.        Magn
Niðurrif og förgun flísa           m²            80
Niðurrif og förgun lofta           m²            80
Gifsplötuveggir                        m²             92
Loftaklæðningar                      m²             53
Innihurðir                                stk             14
Flísalögn á gólf                       m²               52
Flísalögn á veggi                    m²               75
Málun á veggjum og loftum    m²           127
Salernisskálar                          stk             12
Lampar                                    stk              33
Útsogsblásarar                        stk               3

Verklok eru 8. janúar 2018.