F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í verkið:
Brautarholt, Sóltún, Seljavegur. Frágangur gönguleiða. Útboð nr. 14059.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á nýjum útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – Frá kl. 12:00, mánudaginn 4. september 2017. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á ,,Registration“
Vakin er athygi á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 19. september 2017.
Lauslegt yfirlit yfir verkið: Verktaki skal vinna að frágangi gönguleiða á þremur svæðum:
Brautarholt: Verkið felst í megindráttum í gerð gönguleiða umhverfis Brautarholt 7 og í Mjölnisholti við Brautarholt 14. Einnig felst verkið í viðbótum steyptrar gangstéttar á tveimur hornum á neðri hluta Mjölnisholts og einu horni í Ásholti við Laugaveg.
Verkið felst í megindráttum í eftirfarandi:
Rif og förgun á malbiki, steyptri stétt, hellulagðri stétt, kantsteini og vegriði
Rif og förgun á grasi og gróðri við núverandi göngustíg norðan Brautarholts 7.
Jarðvegsskipti fyrir púða undir nýtt stígstæði.
Steypt stétt umhverfis Brautarholt 7 og viðbætur á þremur gangstéttarhornum.
Hellulögn á nýjum stíg norðan Brautarholts 7 sem hliðfærist frá því sem nú er.
Færsla hellulagnar niður Mjölnisholt upp að hóteli Brautarholti 14.
Malbikun nýrra bílastæða og svæða sem þarf að lagfæra.
Þökulögn og frágangur á nýjum gróðri.
Gröftur og frágangur lagnaskurðar fyrir kalt vatn og rafstrengi Veitna auk jarðvinnu tengda færslu dreifistöðvar.
Sóltún:
Verkið felst í gerð steyptrar gangstéttar milli götu og lóðamarka að norðanverðu.
Verkið felst í megindráttum í eftirfarandi:
Rif og förgun á malbiki og stéttum
Nýr vélsteyptur kantsteinn
Ný steypt stétt
Seljavegur:
Verkið felst í gerð gangstéttar framan við Seljaveg 1. Við framkvæmdina þarf að saga malbik þar sem nýtt malbik kemur undir kantstein þar sem ný stétt kemur að núverandi stétt.
Helstu magntölur verkanna þriggja eru:
• Upprif á föstu yfirborði 1050 m²
• Uppgröftur 200 m³
• Malarfylling 190 m³
• Malbikun 230 m²
• Hellulögn 810 m²
• Steypt stétt 870 m²
• Kantsteinn 570 m
• Þökulögn 125 m²
• Tré 3 stk
• Runnar 24 stk
• Yfirborðsmerkingar sprautumálun: 190 m
• Niðurföll 2 stk
• Færsla 8 m ljósastólpa 1 stk.
Lok framkvæmda:
Brautarholt: 1. desember 2017
Sóltún og Seljavegur: 1. júní 2018