Ríkiseignir óska eftir rafverktaka til að taka þátt í örútboð vegna „Nýs aðaldreifiskáps“ fyrir Tollhúsið Tryggvagötu 19. Verkið felst í aðalatriðum í smíði og uppsetningu nýs aðaldreifiskáps, skiptirofa fyrir rafstöð og framlengingu heimtaugar. Helstu verkliðir eru:
- Smíð nýs aðaldreifiskáps.
- Uppsetning nýs aðaldreifiskáps í húsinu.
- Uppsetning og tenging skiptirofa fyrir rafastöð.
- Aftenging heimtaugar í núverandi aðaldreifiskáp og framlenging hennar og tenging í nýjum aðaldreifiskáp.
- Lagning og tenging bráðabirgðakvíslar frá nýjum aðaldreifiskáp að núverandi aðaldreifiskáp.
Nauðsynlegt er að bjóðendur hafi reynslu af sambærilegu verki.
Verkís svarar öllum fyrirspurnum. Þeir sem hafa áhuga á að fá send gögn og taka þátt í örútboðinu eru beðnir um að senda póst á rb@verkis.is