
Breskt fyrirtæki, Boskalis Westminster Limited, átti hagstæðasta tilboðið í dýpkun innsiglingarinnar til Hornafjarðar, Grynnslanna.
Þetta fyrirtæki hefur ekki áður unnið fyrir Vegagerðina.
Hornafjarðarhöfn óskaði eftir tilboðum í viðhaldsdýpkun næstu þrjú ár í innsiglingarrennu að höfninni. Í útboðinu eru þrjár dýpkunarlotur: 1. maí til 15. október árin 2026, 2027 og 2028.
Til stendur að dýpka um 650.000 rúmmetra (m3) af sandi á hafsbotni á ári eða 1.950.000 m3 yfir allt samningstímabilið.
Heimild: Mbl.is











