Home Fréttir Í fréttum Stækkun Tónlistarskóla Garðabæjar

Stækkun Tónlistarskóla Garðabæjar

20
0
Mynd: Garðabær

Auglýst er útboð vegna innkaupa á uppsteypu og fullnaðarfrágangi við stækkun aðalbyggingar Tónlistarskólans í Garðabæ.

Garðabær stendur að útboði þessu vegna innkaupa á uppsteypu og fullnaðarfrágangi við stækkun aðalbyggingar Tónlistarskólans í Garðabæ að Kirkjulundi 11.

Hér er um útboð á fullgerðri viðbyggingu að ræða, bæði utanhúss sem innan.

Um almennt útboð er að ræða, sbr. 34. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup og er útboðið auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu. Samið verður við einn bjóðanda.

Gögn verða aðgengileg á vefsvæði útboðsins https://www.ntibidco.com frá og með föstudeginum 30. janúar 2026 kl 16:00.