Útboð:
Mosfellsbær býður út endurnýjun vallarlýsingar á Varmárvelli
Mosfellsbær hefur auglýst útboð vegna framkvæmdarinnar „Varmá – Gervigrasvöllur, endurnýjun vallarlýsingar“.
Verkið felur í sér endurnýjun vallarlýsingar á eldri gervigrasvelli Aftureldingar á Varmársvæðinu í Mosfellsbæ.
Ný flóðlýsing fyrir keppni og æfingar
Samkvæmt útboðslýsingu felur verkefnið í sér að útvega, hanna, setja upp, tengja og ganga að fullu frá öllum raflögnum vegna nýrrar vallarlýsingar.
Um er að ræða nýjan lampabúnað fyrir flóðlýsingu vallarins með:
- Keppnislýsingu upp á 500 lux
- Æfingalýsingu upp á 300/100 lux
Framkvæmdin er liður í endurbótum á íþróttaaðstöðu á Varmársvæðinu.
Tilboð afhent rafrænt í júní
Útboðsgögn eru aðgengileg rafrænt án endurgjalds á útboðsvef VSÓ Ráðgjafar frá og með 19. maí 2026 klukkan 14:00.
Tilboðum skal skila rafrænt eigi síðar en miðvikudaginn 10. júní 2026 klukkan 14:00. Tilboð verða opnuð á sama tíma.












