Home Fréttir Í fréttum 02.06.2026 Vegagerðin býður út endurbyggingu Önundarholtsvegar -Útboð

02.06.2026 Vegagerðin býður út endurbyggingu Önundarholtsvegar -Útboð

181
0
Útboð
Mynd: sunnlenska.is/Guðmundur Karl

Útboð:

Vegagerðin hefur auglýst útboð vegna endurbyggingar á Önundarholtsvegi (311) á kaflanum milli Gaulverjabæjarvegar og Villingaholtsvegar.

Verkið felur í sér endurbyggingu á um 4,9 kílómetra löngum vegkafla ásamt útlögn tvöfaldrar klæðingar á veginn og aðliggjandi tengingar.

Umfangsmiklar framkvæmdir við vegagerð

Helstu magntölur framkvæmdarinnar eru:

  • Fyllingar: 11.731 m³
  • Fláafleygar: 8.265 m³
  • Styrktarlag: 14.154 m³
  • Burðarlag 0/22: 7.921 m³
  • Tvöföld klæðing: 34.934 m²
  • Frágangur fláa: 1.208 m²

Samkvæmt útboðslýsingu skal útlögn klæðingar lokið fyrir 15. september 2026 og verkinu í heild eigi síðar en 30. september 2026.

Tilboð afhent rafrænt í TendSign

Útboðsgögn eru aðgengileg í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með 18. maí 2026.

Tilboðum skal skila rafrænt fyrir klukkan 14:00 þriðjudaginn 2. júní 2026.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur, en eftir lok tilboðsfrests verða bjóðendum kynnt nöfn bjóðenda og verðtilboð.