Home Fréttir Í fréttum Steypu undirstaðna lokið í Vaðölduveri

Steypu undirstaðna lokið í Vaðölduveri

125
0
Steypu undirstaðna lokið í Vaðölduveri
Unnið við að steypa undirstöðu í Vaðölduveri. Myndir: Landsvirkjun

Steypu undirstaðna lokið í Vaðölduveri

Síðasta undirstaðan fyrir vindmyllurnar í Vaðölduveri var steypt föstudaginn 2. október. Þar með er stórum áfanga náð í framkvæmdunum. Fjórtán vindmyllur hafa þegar verið reistar og áætlað er að reisa hinar fjórtán árið 2027.

Rúmt ár frá fyrstu steypu

Fyrsta undirstaðan í Vaðölduveri var steypt í september 2025 og hefur vinna við undirstöðurnar því staðið yfir í rúmt ár, samhliða flutningum og uppsetningu vindmyllna. Samhæfing þessara ólíku verkþátta kallaði á náið samstarf verktaka og starfsfólks á svæðinu. Með steypu síðustu undirstöðunnar lýkur þessum stóra áfanga framkvæmdanna.

Fyrsta undirstaðan var steypt í Vaðölduveri í september 2025.

Nákvæmisverk frá grunni

Undirstöður vindmyllanna bera þunga þeirra og þá krafta sem myndast þegar vindurinn knýr spaðana. Gerð hverrar undirstöðu felur meðal annars í sér uppgröft, undirlagsvinnu, járnabindingu og uppsetningu festinga fyrir turninn áður en steypt er.

Mikla nákvæmni þarf við verkið og áður en steypt er þarf að koma fyrir lögnum og öðrum búnaði sem tengist vindmyllunni.

Festibúnaður turnsins þarf að vera rétt staðsettur í hæð og legu svo neðsti hluti turnsins falli nákvæmlega að honum við uppsetningu. Að steypuvinnu lokinni þarf að bíða eftir að steypan nái tilskildum styrk áður en hægt er að hefja uppsetningu turnsins. Ístak sá um mannvirkjagerðina og COWI um eftirlit með framkvæmdunum.

Fullsteypt undirstaða vindmyllu í Vaðölduveri. Næsta skref er að fylla að henni og undirbúa fyrir uppsetningu turnsins.

Fjórtán vindmyllur rísa á næsta ári

Uppsetningu fyrstu fjórtán vindmyllnanna lauk í lok ágúst. Áætlað er að reisa hinar fjórtán árið 2027.

Vaðölduver rís austan Þjórsár, sunnan Sultartangastíflu í Rangárþingi ytra. Fullbyggt verður vindorkuverið með 28 vindmyllum og um 120 megavatta uppsett afl.

Nákvæmnismælingar á undirstöðu áður en uppsetning vindmyllu hefst.

Heimild: Landsvirkjun.is

Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: 14 vindmyllur gangsettar við Vaðöldu

Efni: Steypu undirstaðna lokið í Vaðölduveri