
Jakinn í brotajárn
Tímamót eru nú í starfsemi Eimskips við Sundahöfn þegar gámakraninn Jaki er rifinn. Síðasta hífing á krananum var 26. september síðastliðinn og fáeinum dögum síðar mættu kunnáttumenn frá Bretlandi á svæðið til að taka tækið niður og færa í brotajárn. Því verki á ljúka fyrir næstu mánaðamót.
Kaup og uppsetning Eimskips á Jakanum árið 1984 leiddi af sér straumhvörf í starfseminni við höfnina. Losun og lestun á flutningaskipum í útgerð, sem voru mun fleiri þá er nú, tók mun skemmri tíma en áður. Ýmislegt í búnaði Jakans var nú, eftir langa notkun, orðið hins vegar úrelt, svo hann dæmdist úr leik.
Heimild: Mbl.is
Efni: Jakinn í brotajárn











