Home Fréttir Í fréttum Fá ekki að áfrýja dómi um virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar beint til Hæstaréttar

Fá ekki að áfrýja dómi um virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar beint til Hæstaréttar

75
0
Fá ekki að áfrýja dómi um virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar beint til Hæstaréttar
Mynd: RÚV – Ragnar Visage

Fá ekki að áfrýja dómi um virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar beint til Hæstaréttar

Hæstiréttur hafnaði fyrr í vikunni beiðni landeigenda um að áfrýja dómi héraðsdóms um virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar beint til æðsta dómstigsins.

Landeigendur töldu að dæmdi Hæstiréttur í málinu hefði það verulegt fordæmisgildi, meðal annars fyrir skýringu raforkulaga og skýringu á bindandi réttaráhrifum. Héraðsdómur féllst hins vegar ekki á það.

Deilan snýr að áformum Landsvirkjunar um að reisa og reka virkjun í neðri hluta Þjórsár. Landeigendur stefndu íslenska ríkinu og Landsvirkjun vegna þeirra.

Dómur féll í Héraðsdómi Reykjavíkur í júní. Þar var ekki fallist á kröfu landeigenda um að ógilda virkjanaleyfið fyrir Hvammsvirkjun.

Þetta er í annað sinn sem virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar ratar fyrir dómstóla. Fyrra virkjunarleyfið var ógilt í Hæstarétti í fyrrasumar. Í desember var nýtt leyfi gefið út á grundvelli breyttra laga. Landeigendur fóru fram á ógildingu þess fyrir dómi í framhaldinu.

Heimild: Ruv.is

Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Engar hindranir í vegi fyrir Hvammsvirkjun

Efni: Fá ekki að áfrýja dómi um virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar beint til Hæstaréttar