Home Fréttir Í fréttum Google þarf að stöðva framkvæmdir við gagnaver þar til umhverfismat liggur fyrir

Google þarf að stöðva framkvæmdir við gagnaver þar til umhverfismat liggur fyrir

129
0
Google þarf að stöðva framkvæmdir við gagnaver þar til umhverfismat liggur fyrir
Framkvæmdasvæði þar sem Google byggir gagnaver í Kajana í Finnlandi í september 2026. YLE – Janne Pussila

Google þarf að stöðva framkvæmdir við gagnaver þar til umhverfismat liggur fyrir

Google byggir nú tvö gagnaver í Finnlandi. Upplýsingar komu fram um ólöglegt skógarhögg og því hefur finnsk leyfis- og eftirlitsstofnun gripið inn í með því að stöðva framkvæmdir þar til umhverfismat liggur fyrir.

Finnsk leyfis- og eftirlitsstofnun tilkynnti í gær dótturfélagi Google í Finnlandi að fyrirtækinu beri að stöðva alla vinnu við tvö fyrirhuguð gagnaver þar til búið er að gera umhverfismat fyrir framkvæmdina.

Finnska ríkisútvarpið greinir frá.

Leyfis- og eftirlitsstofnunin hefur rannsakað starfsemi Google við uppbyggingu gagnavera í Muhos og Kajaani í Finnlandi eftir að upplýsingar komu fram um ólöglegt skógarhögg. Talið er að Google og undirverktakar fyrirtækisins hafi gert mistök og fellt tré þar áður en umhverfismat fór fram.

Tilskipun leyfis- og eftirlitsstofnunar um stöðvun framkvæmdanna gildir þar til búið er að meta umhverfisáhrif þeirra.

Tuike, dótturfyrirtæki Google í Finnlandi sem sér um framkvæmdina, getur þó haldið áfram með skipulagsvinnu, mælingar, jarðvegsrannsóknir og aðra starfsemi sem hefur ekki áhrif á umhverfið.

Upplýsingafulltrúi Google í Finnlandi og Noregi, Sondre Ronander, segir að Google starfi í góðri trú samkvæmt skógræktarlögum. Mat á umhverfisáhrifum heyrir þó ekki undir skógræktarlögin heldur um lög um mat á umhverfisáhrifum.

Ráðherra umhverfis- og loftslagsmála, Sari Multala, sagði í viðtali við finnska dagblaðið Iltalehti á þriðjudag að það heyri til undantekninga að yfirvöld neyðist til að stíga inn í og stöðva framkvæmdir. Hún sagði að öll fyrirtæki sem starfa í Finnlandi verði að fara eftir lögum og gera mat á umhverfisáhrifum áður en farið er í verulegar og varanlegar breytingar á umhverfinu.

Heimild: Ruv.is

Efni: Google þarf að stöðva framkvæmdir við gagnaver þar til umhverfismat liggur fyrir