Home Fréttir Í fréttum Ný innisundlaug á Akureyri opnar í sumar

Ný innisundlaug á Akureyri opnar í sumar

25
0
Ný innisundlaug á Akureyri opnar í sumar
Gísli Rúnar Gylfason, forstöðumaður sundlauga Akureyrar. RÚV – Kristófer Óli Birkisson

Ný innisundlaug á Akureyri opnar í sumar

Framkvæmdir hafa staðið á innilaug Sundlaugar Akureyrar í nær tvö ár. Forstöðumaður sundlauga Akureyrar segir einungis nokkrar vikur í opnun á nýrri og bjartari innilaug með betra aðgengi.

Ný innisundlaug í Sundlaug Akureyrar verður opnuð á næstu vikum, segir Gísli Rúnar Gylfason, forstöðumaður sundlauga Akureyrar. Nýja laugin er uppfærsla á gömlu innilauginni sem var um 70 ára gömul.

Gísli segir allt tilbúið en nú þurfi bara að setja vatn í nýju laugina og prófa hana. Síðustu tvær vikur hafi staðið til að fylla laugina en sumarfrí iðnaðarmanna hafi tafið ferlið aðeins.

„En þegar þetta er búið að taka tvö ár þá skipta vikur ekki miklu máli,“ segir Gísli.

Framkvæmdirnar hafa gengið vel að sögn Gísla. „Við gengum svolítið blint í þetta,“ segir hann. Sökum þess hve gömul upprunalega sundlaugin var voru engar teikningar af henni til og takmarkaðar upplýsingar fyrir hendi.

Innilaugin í miðjum framkvæmdum.
Facebook / Akureyrarbær

Skólasund í rennibrautalaug

Gamla innilaugin hefur verið lokuð vegna framkvæmda frá því í október árið 2024. Á þessum tíma hefur skólasund sem venjulega er kennt í innilauginni verið fært í lendingarlaug rennibrautanna. Rennibrautirnar hafa þar af leiðandi verið lokaðar á skólatíma síðustu misseri.

Allt innilaugasvæðið hefur verið endurflísalagt. Þá hefur veggur sem snýr að andarpollinum verið færður lengra út og gluggar stækkaðir.

Gísli segir marga viðkvæma hópa sem nýti innilaugina sérstaklega njóta góðs af breytingunum. Það hafi verið erfitt að komast ofan í og upp úr gömlu lauginni þar sem bakkar hennar hafi verið svo háir. Háu bakkarnir hafi verið fjarlægðir og aðgengi bætt enn frekar með rampi ofan í laugina.

Teikning af nýrri innilaug.
Facebook – Sundlaug Akureyrar

Heimild: Ruv.is