
Hótelturninn á Skúlagötu er nær tilbúinn
Uppbygging 17 hæða hótelturns á Skúlagötu 26 í Reykjavík er langt komin og má gera ráð fyrir að framkvæmdum ljúki í sumar.
Með því er komið í ljós hvernig byggingin fellur inn í borgarlandslagið. Hún markar tímamót í íslenskri byggingarsögu því forsmíðuðum herbergjaeiningum er raðað utan um steypt lyftu- og stigahús. Því er innivinna langt komin.
Alls þarf að hífa upp 214 herbergjaeiningar að meðtöldum svítum en ein svítan er þrjár einingar. Þá er útveggjum með gluggum raðað utan á húsið.
Á 17. hæð hótelsins verður bar með útsýni yfir miðborgina og sundin og fyrir ofan hann verður útsýnisverönd á þakinu. Verið er að leggja lokahönd á stálgrindina á þakinu en utanáliggjandi lyfta verður á turninum sunnan megin.

Nokkrar hagsveiflur
Verkefnið á sér langan aðdraganda. Það hófst árið 2018 með niðurrifi eldri bygginga en síðan hefur ferðaþjónustan gengið í gegnum hæðir og lægðir: gjaldþrot WOW air, kyrrsetningu MAX Boeing-þotna Icelandair og farsótt. Verkefnið var sett á ís vegna farsóttarinnar árin 2020–2021 en stefnt hafði verið að opnun hótelsins fyrir árslok 2021.
Síðan náði ferðaþjónustan vopnum sínum og hófst uppbygging hótela í borginni á ný. Nú er ferðaþjónustan hins vegar í enn einum mótvindinum vegna óbeinna áhrifa Íransstríðsins á ferðalög.
Framkvæmdin er á vegum Rauðsvíkur en skoska arkitektastofan Kettle Collective hannaði hótelið.
Við hótelið, Vitastígsmegin, er verið að leggja lokahönd á 27 íbúðir sem verða fyrir almennan markað en undir hótelinu og íbúðunum verður bílakjallari með 51 bílastæði.

Við hlið Vitatorgs
Hér fyrir ofan er mynd þar sem horft er austur Skúlagötu. Á henni má sjá hvernig turninn fellur að Vitatorgshúsunum, sem eru með gulri klæðningu, en skráð byggingarár þeirra í fasteignaskrá er 1993.
Á mynd hér til vinstri er horft á framhlið turnsins og upp Vitastíg. Minnir útlitið þá dálítið á Hús verslunarinnar vegna þess hvernig turninn stallast.


Heimild: Mbl.is
Efni: Hótelturninn á Skúlagötu er nær tilbúinn











