
Samgönguáætlun samþykkt
Samgönguáætlun var samþykkt á Alþingi í gær fyrir árin 2026 til 2040. Þetta er fyrsta samgönguáætlunin sem nær fram að ganga síðan árið 2020.
Í tilkynningu frá stjórnarráðinu segir að meginmarkmið nýrrar samgönguáætlunar sé að stórauka framlög til viðhalds vega, hefja stórframkvæmdir við samgöngumannvirki og byrja aftur að bora jarðgöng á Íslandi.
Unnið verður að framkvæmdum á innanlandsflugvöllum og við hafnir landsins og áfram verður stutt við almenningssamgöngur. Þá er stefnt að því að tryggja farnetssamband á stofnvegum og helstu tengivegum.
Loks er kynnt ný jarðgangaáætlun en þar eru Fljótagöng, Fjarðagöng, Súðavíkurgöng og Miklidalur og Hálfdán sett í forgang og fleiri valkostir verða áfram til skoðunar.
Stefnt er að því að hefja framkvæmdir við Fljótagöng árið 2027.
„Það er fagnaðarefni að metnaðarfull samgönguáætlun sé nú loks í höfn eftir vandaðan undirbúning og samráð um land allt,“ er haft eftir Eyjólfi.
Heimild: Mbl.is











