Níu aðilar buðu í þjónustu við trjáfellingar í Reykjavík
Níu aðilar skiluðu tilboðum í EES-útboð Reykjavíkurborgar vegna þjónustu við trjáfellingar í borgarlandinu. Um er að ræða rammasamning um hirðingu skógar- og gróðursvæða borgarinnar, meðal annars grisjun, trjáklifur, kjarrsögun, stubbatætingu og kurlun.
Tilboð voru opnuð hjá Reykjavíkurborg í dag, 20. ágúst, í útboði nr. 16319 „Þjónusta við trjáfellingar í borgarlandinu – Rammasamningur“.
Markmið útboðsins er að kaupa þjónustu vegna hirðingar skógræktarsvæða og annarra gróinna svæða Reykjavíkurborgar.
Verkefnunum er skipt í sjö verkflokka sem ná meðal annars til grisjunar, kjarrsögunar og klippinga, klifurs og riggingar, útdráttar og útkeyrslu, stubbatætingar, botnkurlunar og kurlunar.
Níu aðilar skiluðu tilboðum
Eftirtaldir aðilar tóku þátt í útboðinu:
- Allt fyrir garðinn ehf.
- Moldarblandan-Gæðamold
- Arboristi ehf.
- Gróinn ehf.
- Garðaþjónusta Sigurjóns ehf.
- Garðmenn ehf.
- Hreinir Garðar ehf.
- Skógræktarfélag Reykjavíkur
- Garðlist ehf.
Þátttaka fyrirtækjanna er mismunandi eftir verkflokkum. Allt fyrir garðinn, Hreinir Garðar og Garðlist skiluðu tilboðum í alla sjö verkflokkana.
Rammasamningurinn er gerður til eins árs en Reykjavíkurborg hefur heimild til að framlengja hann þrisvar sinnum um eitt ár í senn. Samningurinn getur því gilt í allt að fjögur ár.
Heimild: Reykjavik.is
Efni: Níu aðilar buðu í þjónustu við trjáfellingar í Reykjavík












