Home Fréttir Í fréttum Reykjavík hættir við tæplega 500 m.kr. endurbætur á Vitatorgi

Reykjavík hættir við tæplega 500 m.kr. endurbætur á Vitatorgi

70
0
Reykjavík hættir við tæplega 500 m.kr. endurbætur á Vitatorgi
Mynd: Reykjavíkurborg

Reykjavík hættir við tæplega 500 m.kr. endurbætur á Vitatorgi

Reykjavíkurborg hefur ákveðið að falla frá áður fyrirhuguðum umfangsmiklum endurbótum á framleiðslueldhúsinu á Vitatorgi. Áætlað var að verja um 500 milljónum króna í framkvæmdina og hefðu verklok í fyrsta lagi verið um mitt ár 2028.

Borgarráð samþykkti breytingu á áformunum á fundi sínum fimmtudaginn 20. ágúst.

Með ákvörðuninni er horfið frá uppbyggingu framleiðslueldhússins og stefnt þess í stað að því að framleiðsla máltíða fyrir matarþjónustu Reykjavíkurborgar verði áfram hjá sérhæfðum aðila á matvælamarkaði.

Framkvæmdir hefðu í fyrsta lagi lokið um mitt ár 2028

Í bókun meirihluta borgarráðs kemur fram að ekki sé talið forsvaranlegt að Reykjavíkurborg verji að lágmarki 500 milljónum króna í endurbætur á framleiðslueldhúsinu.

Fram kemur að rekstur eldhússins hafi verið erfiður og óhagkvæmur um árabil. Eldhúsið fór samkvæmt bókuninni 117 milljónir króna fram úr fjárheimild árið 2023, 42 milljónir árið 2024 og 69 milljónir árið 2025.

Jafnframt kemur fram að ef ráðist hefði verið í fyrirhugaðar framkvæmdir hefðu þær í fyrsta lagi verið tilbúnar um mitt ár 2028.

Athugasemdir vegna matvælaöryggis

Forsaga málsins tengist einnig ástandi framleiðslueldhússins.

Í fundargerð borgarráðs kemur fram að Heilbrigðiseftirlitið hafi gert athugasemdir við eldhúsið á Vitatorgi árið 2023 og að ástandið hafi enn verið óviðunandi árið 2025.

Í febrúar síðastliðnum greindist síðan listería og þurfti að loka eldhúsinu.

Í kjölfarið var framleiðsla máltíða færð til sérhæfðs utanaðkomandi aðila.

Telja framleiðsluna betur komna hjá sérhæfðu fyrirtæki

Samkvæmt mati velferðarsviðs, að undangenginni yfirferð á matvælaöryggi, mönnun, rekstri, þjónustugæðum og fjárhag, er framleiðsla máltíða talin betur komin hjá sérhæfðu fyrirtæki sem uppfyllir kröfur HACCP III matvælaöryggiskerfis.

Meirihluti borgarráðs telur því óskynsamlegt að ráðast í fyrirhugaða fjárfestingu í framleiðslueldhúsinu og segir að með ákvörðuninni sé komið í veg fyrir veruleg fjárútlát.

Minnihlutinn gagnrýndi hins vegar ákvörðunina og taldi að áður en svo umfangsmikil stefnubreyting væri samþykkt ætti að liggja fyrir heildstæð greining á langtímaáhrifum útvistunar á kostnað, þjónustustig og verðlag.

Tillögu um að fresta málinu og ráðast fyrst í slíka greiningu var hafnað.

Ákvörðunin um að breyta fyrri áformum vegna framleiðslueldhússins var síðan fullnaðarafgreidd í borgarráði í gær.

Heimild: Reykjavik.is

Efni: Reykjavík hættir við tæplega 500 m.kr. endurbætur á Vitatorgi