
Ætla að þrefalda veltuna á 5 árum
Í desember sl. keyptu stjórnendur Málmsteypu Þorgríms Jónssonar ehf. félagið af framtakssjóði í stýringu Alfa Framtaks. Anton Reynir Hafdísarson, fjármála- og sölustjóri og einn hinna nýju eigenda, telur viðskiptin vera fyrsta dæmið hérlendis um stjórnendakaup af þessu tagi úr eigu framtakssjóðs.
Blaðamaður tók hús á Antoni í höfuðstöðvum félagsins í Garðabæ. Hann segir að fyrirtækið hafi verið stofnað árið 1944. „Á þessum tíma, þegar seinni heimsstyrjöldin geisaði enn, var mikill aðfangaskortur vegna stríðsins.
Þarna tóku frumkvöðlar sig til og bræddu upp málm til að framleiða ýmsa hluti eins og potta og pönnur. Í kringum 1970 hóf Málmsteypan svo framleiðslu á vörum sem enn er verið að búa til og fyrirtækið er hvað þekktast fyrir eins og á niðurföllum, brunnlokum og fleiru. Við eigum enn upprunalegu mótin,“ segir Anton og brosir.
Heimild: Mbl.is











