Home Fréttir Í fréttum 14.07.2026 Múlaþing býður út fyrsta áfanga stækkunar leikskólans Bjarkatúns á Djúpavogi

14.07.2026 Múlaþing býður út fyrsta áfanga stækkunar leikskólans Bjarkatúns á Djúpavogi

17
0
Múlaþing býður út fyrsta áfanga stækkunar leikskólans Bjarkatúns á Djúpavogi
Múlaþing býður út fyrsta áfanga stækkunar leikskólans Bjarkatúns á Djúpavogi

Múlaþing býður út fyrsta áfanga stækkunar leikskólans Bjarkatúns á Djúpavogi

Múlaþing hefur auglýst útboð vegna fyrsta áfanga stækkunar leikskólans Bjarkatúns á Djúpavogi. Verkið felst í smíði og fullnaðarfrágangi viðbyggingar ásamt breytingum á núverandi húsnæði leikskólans.

Leikskólinn Bjarkatún stendur við Hammersminni 15b á Djúpavogi og er í dag tveggja deilda leikskóli. Fyrirhugað er að stækka skólann í tveimur áföngum til að bæta aðstöðu og auka þjónustu við yngstu íbúa sveitarfélagsins.

Fyrsti áfangi framkvæmdarinnar felur í sér byggingu nýrrar kennsluaðstöðu til norðurs ásamt breytingum á núverandi húsnæði. Viðbyggingin verður um 112,7 fermetrar að brúttógólffleti, auk um 60 fermetra breytinga innanhúss.

Framkvæmdir ljúka sumarið 2027

Gert er ráð fyrir að framkvæmdir geti hafist strax eftir undirritun verksamnings og skulu þær vera að fullu lokið fyrir 20. júlí 2027.

Helstu magntölur verksins:

  • Gröftur: 500 m³
  • Losun klappa: 30 m³
  • Fyllingar: 290 m³
  • Útveggir: 130 m²
  • Þakflötur: 120 m²
  • Niðurrif innanhúss: 60 m²
  • Loftræsikerfi: 100 m²

Tilboð opnuð 14. júlí

Útboðsgögn eru aðgengileg í Ajour-útboðskerfi COWI frá og með 23. júní 2026.

  • Fyrirspurnarfrestur rennur út 7. júlí 2026.
  • Svör við fyrirspurnum verða birt fyrir 9. júlí 2026.
  • Tilboðum skal skila eigi síðar en 14. júlí 2026 kl. 14:00.
  • Tilboð verða opnuð rafrænt að tilboðsfresti loknum.

Heimild: Múlaþing