Garðabær býður út eftirlit með framkvæmdum í Arnarlandi
Garðabær hefur auglýst útboð á umsjón og eftirliti með framkvæmdum í Arnarlandi, þar sem leitað er að eftirlitsaðila vegna umfangsmikilla gatna- og veituframkvæmda á uppbyggingarsvæði Arnarlands.
Eftirlitsverkefnið nær til framkvæmda fyrir Garðabæ og veitufyrirtæki vegna útboðsverksins Arnarland – gatnagerð og lagnir. Um er að ræða eftirlit með gatna- og stígagerð auk lagnavinnu sem tengist áframhaldandi uppbyggingu hverfisins.
Gerðar kröfur um reynslu og þekkingu
Gerð er krafa um að eftirlitsaðili búi yfir góðri þekkingu og reynslu af sambærilegum verkum. Eftirlitið skal fara fram samkvæmt útboðs- og verklýsingum, verksamningum og öðrum fylgigögnum verksins.
Áætluð verklok framkvæmdarinnar eru 1. apríl 2027 og skal eftirlitsaðili sinna verkefninu allan framkvæmdatímann.
Tilboð opnuð í júlí
Útboðsgögn eru aðgengileg rafrænt án endurgjalds í útboðskerfi NTI Bidco frá 23. júní 2026.
Tilboðum skal skila eigi síðar en 14. júlí 2026 klukkan 11:00 og verða þau opnuð rafrænt sama dag klukkan 11:05.
Heimild: Garðabær












