Home Fréttir Í fréttum Hringvegurinn styttist við Höfn

Hringvegurinn styttist við Höfn

16
0
Hringvegurinn styttist við Höfn
Ný brú yfir Hoffellsá er ein af þremur nýjum brúm á leiðinni.

Hringvegurinn styttist við Höfn

Nýr vegkafli þjóðvegar 1 verður opnaður formlega 24. júní, næsta miðvikudag, með borðaklippingu klukkan 15. Mun vegurinn þar með styttast um tólf kílómetra og einbreiðum brúm fækka til muna.

Hornfirðingar fagna áfanganum ákaft að sögn Hjalta Þórs Vignissonar, nýskipaðs bæjarstjóra sveitarfélagsins Hornafjarðar, sem lýsir þó yfir áhyggjum af fyrirhuguðum veggjöldum.

„Þetta er náttúrulega mikilvægur áfangi og styttir leiðir innan héraðsins, en þessi veggjöld eru ákveðin vonbrigði,“ segir hann í samtali við Morgunblaðið.

Tekið verður veggjald til að standa undir fjármögnun framkvæmdarinnar í samræmi við lög um samvinnuverkefni og hefst sú gjaldtaka 1. september í ár, en hringvegur eitt um Hornafjörð er fyrsta samvinnuverkefnið sem Vegagerðin stendur að. Stök ferð fólksbíls mun kosta 1.500 krónur, en stök ferð stærri flutningabíla 4.500 krónur.

Heimild: Mbl.is