Home Fréttir Í fréttum Stefna að upp­byggingu baðlóns og hótels í Grundar­firði

Stefna að upp­byggingu baðlóns og hótels í Grundar­firði

14
0
Stefna að upp­byggingu baðlóns og hótels í Grundar­firði
Frá Grundarfirði á Snæfellsnesi. Tómas Freyr Kristjánsson

Stefna að upp­byggingu baðlóns og hótels í Grundar­firði

Bæjarráð Grundarfjarðarbæjar samþykkti á fundi sínum í dag viljayfirlýsingu milli sveitarfélagsins og JAE ehf. um mögulega uppbyggingu ferðaþjónustu í Grundarfirði – baðlón og lúxushótel.

Í tilkynningu frá Grundarfjarðarbæ segir að yfirlýsingin feli í sér að hluthafar JAE ehf. muni vinna að stofnun félags um uppbyggingu ferðaþjónustu í Grundarfirði.

„Viljayfirlýsingin tekur til þróunar og rannsókna á tveimur verkefnum: baðlóni og lúxushóteli ofan þéttbýlis Grundarfjarðar. Unnið verður hratt að rannsóknum og ábatagreiningu verkefnisins og er niðurstöðu þess að vænta fyrir 1. október nk.

Að mati JAE ehf. er viljayfirlýsingin grundvöllur frekari rannsókna á svæðinu og ítarlegrar ábatagreiningar, enda er Grundarfjörður einstaklega vel staðsettur í þessu samhengi og náttúrufegurðin er engu lík,“ segir í tilkynningunni.

Haft er eftir Birki Jóni Jónssyni, bæjarstjóra Grundarfjarðarbæjar, að hann fagni áfanganum.

„Við fögnum áhuga öflugra aðila á að vilja byggja upp rekstur og fjárfesta í atvinnulífi og uppbyggingu í Grundarfirði. Gríðarleg tækifæri felast í þessu fyrir samfélag okkar og ljóst að heilmikil atvinnuuppbygging mun eiga sér stað ef af verður,“ er haft eftir Birki Jóni.

Heimild: Visir.is