
Stefna á að opna nýtt hjúkrunarheimili í Reykjanesbæ
Nýtt og glæsilegt hjúkrunarheimili fyrir 90 íbúa mun opna við Keilisbraut í Reykjanesbæ, kemur fram í tilkynningu frá félags- og húsnæðismálaráðuneytinu.
Ráðist verður í gagngerar breytingar og endurbætur á húsnæði við Keilisbraut 753 og 754 og eru aðgerðir vegna uppbyggingarinnar þegar hafnar. Áætlað er að nýja hjúkrunarheimilið verði tekið í notkun vorið 2028.
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) mun annast rekstur hjúkrunarheimilisins en ríkið leigir húsið með leigusamningi til 25 ára af Icelandic Home ehf. Heimilið verður ríflega 6.500 fermetrar og öll herbergin einbýli með baðherbergjum.

„Heilbrigðisstofnun Suðurnesja fagnar mjög þessum áfanga í þjónustu við aldraða á Suðurnesjum. Aðstaðan á Keilisbraut býður upp á marga möguleika til að mynda fallega umgjörð fyrir íbúa heimilisins og móta þar fyrirmyndar samfélag. Með opnun nýja hjúkrunarheimilisins á Keilisbraut skapast einstakt tækifæri til að efla sjúkrahússtarfsemi HSS enn frekar og mun það hafa víðtæk áhrif á heilbrigðisþjónustu til framtíðar,“ segir Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, forstjóri HSS.
Hjúkrunarheimilið við Keilisbraut er hluti af framkvæmdaáætlun um uppbyggingu hjúkrunarheimila fyrir árin 2026-2030 en þar er gert ráð fyrir að ríflega 1.500 hjúkrunarrými verði tekin í notkun á tímabili áætlunarinnar. Í dag eru alls 160 hjúkrunarrými í Reykjanesbæ en með nýja hjúkrunarheimilinu verða þau orðin 250.
Heimild: Vb.is











