Home Fréttir Í fréttum Landsvirkjun semur við Andritz Hydro um 2,3 milljarða endurnýjun í Búrfellsstöð

Landsvirkjun semur við Andritz Hydro um 2,3 milljarða endurnýjun í Búrfellsstöð

100
0
Landsvirkjun semur við Andritz Hydro um 2,3 milljarða endurnýjun í Búrfellsstöð
Mynd: Landsvirkjun

Landsvirkjun semur við Andritz Hydro um 2,3 milljarða endurnýjun í Búrfellsstöð

Landsvirkjun hefur samið við austurríska fyrirtækið Andritz Hydro GmbH um hönnun, framleiðslu og afhendingu á fjórum nýjum sátrum fyrir Búrfellsstöð. Heildarkostnaður við sáturskiptin er áætlaður um 2,3 milljarðar króna og eiga verklok að verða á fyrri hluta árs 2030.

Samkvæmt Landsvirkjun mun Andritz Hydro auk framleiðslu og afhendingar hafa umsjón með uppsetningu nýju sátranna. Kaup á búnaðinum sjálfum eru stærsti hluti heildarkostnaðar verkefnisins.

Búrfellsstöð tók til starfa árið 1969 og eru sex vélar í stöðinni. Sátur er kyrrstæður hluti rafalsins sem umlykur snúð hans og þar myndast rafstraumur í spólum við snúning rafalsins. Fyrstu sátur stöðvarinnar voru endurnýjuð undir lok síðustu aldar.

Fjögur sátur endurnýjuð á næstu árum

Samningurinn við Andritz Hydro nær til fjögurra sátra sem verða endurnýjuð á næstu fjórum árum.

Endurnýjun véla Búrfellsstöðvar er þegar hafin. Árið 2023 var skipt um sátur í vél númer sex. Þá var nýja sátrið smíðað af króatíska fyrirtækinu Koncar og tók sjálf útskiptingin og önnur tengd endurnýjun um ellefu vikur.

Annað sátur verður sett upp í vetur samkvæmt eldri samningi við önnur fyrirtæki. Með þeim framkvæmdum og nýja samningnum við Andritz Hydro verður því unnið að endurnýjun sátra allra sex vélasamstæðna stöðvarinnar.

Fyrra samstarf við Andritz

Andritz Hydro hefur áður komið að verkefnum fyrir Landsvirkjun og útvegað búnað meðal annars fyrir Sultartangastöð, Búrfell II og Fljótsdalsstöð.

Gert er ráð fyrir að framkvæmdum samkvæmt nýja samningnum verði lokið á fyrri hluta árs 2030.

Heimild: Landsvirkjun

Efni: Landsvirkjun semur við Andritz Hydro um 2,3 milljarða endurnýjun í Búrfellsstöð