Home Fréttir Í fréttum Hildur vill bjóða Tækniskólanum lóð í Úlfarsárdal

Hildur vill bjóða Tækniskólanum lóð í Úlfarsárdal

54
0
Hildur vill bjóða Tækniskólanum lóð í Úlfarsárdal
Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri Reykjavíkur. mbl.is/Kristófer Liljar

Hildur vill bjóða Tækniskólanum lóð í Úlfarsárdal

Hildur Björnsdóttir borgarstjóri sér fyrir sér að nýr Tækniskóli geti risið í Höllum í Úlfarsárdal og segir mikilvægt að Reykjavíkurborg bregðist hratt við nú þegar áform um uppbyggingu skólans í Hafnarfirði eru úr sögunni.

Hildur greindi frá þessu í Kastljósi RÚV í gærkvöld. Hún segir þegar hafa verið farið yfir mögulegar staðsetningar í Reykjavík og að lóð í Höllum komi sterklega til greina.

„Ég vil nýjan Tækniskóla í Reykjavík. Mér finnst eðlilegt að hann rísi hér í höfuðborginni. Það væri gríðarlega öflugt fyrir efri byggðir að fá svona stóran og öflugan skóla og vinnustað þangað,“ sagði Hildur.

Vill ekki missa af tækifærinu aftur

Um árabil hefur verið unnið að því að koma Tækniskólanum fyrir við Flensborgarhöfn í Hafnarfirði. Nú liggur hins vegar fyrir að þau áform verða ekki að veruleika.

Hildur sagði í Kastljósi að hún hefði fengið veður af þeirri þróun áður en hún varð opinber og þá strax farið að skoða möguleika Reykjavíkur.

„Ég hafði nú heyrt af þessu einhverju fyrr og fór þá auðvitað strax af stað vegna þess að ég var mjög gagnrýnin á það á sínum tíma þegar að Reykjavíkurborg hljóp ekki nægilega hratt og tryggði að nýr Tækniskóli myndi rísa hér í höfuðborginni.“

Hún telur að nýr Tækniskóli geti orðið „flaggskip iðn- og tæknimenntunar“ á Íslandi og að staðsetning hans í Úlfarsárdal gæti jafnframt orðið mikil lyftistöng fyrir efri byggðir Reykjavíkur.

Heimild: Mbl.is

Sjá frétt á BYGGINGAR.IS: Hætt við uppbyggingu Tækniskólans í Hafnarfirði

Efni: Hildur vill bjóða Tækniskólanum lóð í Úlfarsárdal