Nýtt 800 fermetra áhaldahús tekið í notkun á Sauðárkróki
Nýtt áhaldahús Skagafjarðar á Borgarteigi 15 á Sauðárkróki hefur verið tekið í notkun og flutningar starfsemi í húsið eru hafnir. Verksamningur vegna byggingarinnar hljóðaði upp á 272 milljónir króna með virðisaukaskatti.
Framkvæmdir við húsið hófust í september 2025 og var það formlega afhent sveitarfélaginu í júní síðastliðnum. Nú er flutningur starfseminnar kominn af stað og samkvæmt Skagafirði er gert ráð fyrir að honum ljúki á næstu haustdögum.
Húsið er rúmlega 800 fermetrar að gólffleti og er byggt sem límtréshús. Burðarvirkið er úr límtré en útveggir og þak eru klædd yleiningum. Mikil lofthæð er í húsinu sem nýtist meðal annars fyrir lagerstarfsemi og gefur jafnframt möguleika á að koma fyrir millilofti síðar.
Sameinar þrjár starfseiningar
Með nýja húsnæðinu er starfsemi Þjónustumiðstöðvar, Eignasjóðs og Skagafjarðarveitna sameinuð á einum stað.
Sveitarfélagið segir að húsið sé mikilvægur liður í uppbyggingu þjónustu- og rekstraraðstöðu veitu- og framkvæmdasviðs og að með því skapist betri aðstaða fyrir starfsfólk og daglega umsýslu verkefna sem tengjast rekstri innviða sveitarfélagsins.
Uppbygging á Borgarteigi hafði verið talin orðin aðkallandi. Eldra húsnæði starfseminnar á lóðinni hafði staðið nánast óbreytt frá árinu 1978 þótt umfang og eðli starfseminnar hefði þróast verulega á þeim tíma.
Friðrik Jónsson aðalverktaki
Friðrik Jónsson ehf. var aðalverktaki við byggingu áhaldahússins. Samkvæmt fyrri upplýsingum Skagafjarðar hljóðaði verksamningurinn upp á 272 milljónir króna með VSK.
Þ. Hansen ehf. annaðist jarðvinnu, K.Þ. Lagnir pípulagnir, Tengill ehf. raflagnir og Hendill ehf. múrverk. Fyrsta skóflustunga var tekin 8. september 2025, steypuvinna hófst viku síðar og í nóvember sama ár var búið að reisa grind hússins.
Heimild: Skagafjordur.is
Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Nýtt áhaldahús rís á Borgarteig á Sauðárkróki
Efni: Nýtt 800 fermetra áhaldahús tekið í notkun á Sauðárkróki












