Home Fréttir Í fréttum Kalkþörungaverksmiðjan í Súðavík komin undir sperrur

Kalkþörungaverksmiðjan í Súðavík komin undir sperrur

103
0
Kalkþörungaverksmiðjan í Súðavík komin undir sperrur
Hópmynd af afhöfninni. Það er ungverskur siður að fagna með kransi sem hengdur er upp. Myndir: Kristinn H. Gunnarsson.

Kalkþörungaverksmiðjan í Súðavík komin undir sperrur – kostnaðarmat hækkar í 5,5–6,5 milljarða

Framkvæmdir við nýja kalkþörungaverksmiðju Íslenska kalkþörungafélagsins á Langeyri í Súðavík eru komnar vel á veg og hefur burðarvirki hússins nú verið reist. Nýjasta birt kostnaðarmat vegna framkvæmdanna hljóðar upp á 5,5–6,5 milljarða króna, auk um eins milljarðs króna vegna nýs jarðstrengs frá Ísafirði til Súðavíkur.

Reisugildi var haldið á framkvæmdasvæðinu á Langeyri 2. september þar sem því var fagnað að sperrur nýja verksmiðjuhússins væru komnar upp. Íslenska kalkþörungafélagið stendur að framkvæmdinni en ungverska verktakafyrirtækið Lakogep annast byggingu hússins. Tígur ehf. hefur annast jarðvinnu og Verkís og EFLA hafa komið að hönnun og eftirliti.

Verksmiðjuhúsið er um 100 metra langt og 40 metra breitt, auk viðbyggingar sem liggur eftir hluta hússins. BYGGINGAR.IS hefur áður greint frá því að heildarstærð verksmiðjunnar verði um 4.000 fermetrar.

Verksmiðjuhúsið er gríðarstórt.

Stefnt að því að ljúka húsinu um áramót

Halldór Halldórsson, framkvæmdastjóri Íslenska kalkþörungafélagsins, sagði við reisugildið að framkvæmdir hefðu gengið samkvæmt áætlun. Stefnt er að því að byggingunni verði að mestu lokið um næstu áramót. Eftir það tekur við uppsetning sjálfs verksmiðjubúnaðarins og gert er ráð fyrir að prófanir geti hafist um mitt ár 2027.

Samkvæmt upplýsingum Bæjarins besta er áformað að starfsemi hefjist í júlí 2027 og að við verksmiðjuna starfi um 25–30 manns, auk afleiddra starfa.

Halldór Halldórsson, framkvæmdastjóri Ískalk ávarpaði gesti.

Nýtt kostnaðarmat 5,5–6,5 milljarðar

Nú er framkvæmdakostnaður verksmiðjunnar áætlaður 5,5–6,5 milljarðar króna. Til viðbótar kemur um einn milljarður króna vegna nýs jarðstrengs Orkubús Vestfjarða frá Ísafirði til Súðavíkur, en Íslenska kalkþörungafélagið ber þann kostnað.

Þetta er hærra en þær tölur sem áður höfðu verið birtar. Þegar BYGGINGAR.IS fjallaði um framkvæmdirnar í júní síðastliðnum var stofnkostnaður verksmiðjunnar sagður 3–5 milljarðar króna, auk milljarðs vegna raforkutengingarinnar. Nýjustu tölurnar benda því til verulegrar hækkunar frá fyrra mati, þó rétt sé að hafa þann fyrirvara að annars vegar var áður talað um stofnkostnað en nú um framkvæmdakostnað.

Í þeirri umfjöllun kom jafnframt fram að kostnaður vegna hafnarframkvæmda á Langeyri væri um 500 milljónir króna.

Frammámenn í Súðavík sóttu athöfnina. Birta Garðarsdóttir, oddviti lengst til vinstri og Elísabet M. Jónasdóttir, sveitarstjóri lengst til hægri. Milli þeirra eru mæður þeirra Anna Lind Ragnarsdóttir fyrrv. skólastjóri og Guðrún I. Halldórsdóttir fyrrv. bæjarverkstjóri.

Framleiðslugeta um 120 þúsund tonn

Framkvæmdir við verksmiðjuna hófust formlega í apríl á þessu ári. Súðavíkurhreppur greindi þá frá því að fulltrúar Íslenska kalkþörungafélagsins, móðurfélagsins Marigot og Lakogep hefðu tekið fyrstu skóflustunguna og hornsteinn verið lagður að byggingunni.

Samkvæmt fyrri upplýsingum verður framleiðslugeta verksmiðjunnar um 120 þúsund tonn á ári. Kalkþörungaseti verður dælt upp úr Ísafjarðardjúpi, unnið og þurrkað í Súðavík og afurðirnar síðan fluttar á markaði, meðal annars í Evrópu og Miðausturlöndum.

BYGGINGAR.IS hefur fylgst með undirbúningi verkefnisins um nokkurra ára skeið, meðal annars uppbyggingu landfyllingar og hafnaraðstöðu á Langeyri, undirbúningi byggingarinnar og nýrri raforkutengingu til Súðavíkur.

Heimild: BB.is

Eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Framkvæmdir við nýja kalkörungaverksmiðju í Súðavík ganga vel

Efni: Kalkþörungaverksmiðjan í Súðavík komin undir sperrur