Framkvæmdir við nýja kalkörungaverksmiðju í Súðavík ganga vel
Framkvæmdir hófust um miðjan apríl við byggingu á nýrru kalkþörungaverksmiðju á Langeyrinni í Álftafirði á vegum íslenska kalkörungaverksmiðjufélagsins ehf á Bíldudal. Félagið er í eigu erlendra aðila og er því um erlenda fjárfestingu á Vestfjörðum að ræða.
Verksmiðjan mun sækja og vinna kalkþörungaset úr Ísafjarðardjúpi og þurrka í mjöl og aðrar afurðir í um 4000 fermetra verksmiðju í Súðavík og flytja til markaða á meginlandi Evrópu og í Miðausturlöndum.
Framleiðslugeta verksmiðjunnar verður um 120 þúsund tonn á ári. Stofnkostnaður er 3 – 5 milljarðar króna. Bein störf og þjónustuaðilar eru talin verða 30 – 35, en með öllum afleiddum áhrifum skapar starfsemin fleiri störf á norðanverðum Vestfjörðum eða um 50 störf.
Orkuþörf verksmiðjunnar er um 8 MW og er Orkubú Vestfjarða að leggja jarðstreng frá Ísafirði til Súðavíkur sem mun tryggja flutning á raforkunni. Kostnaðurinn er greiddur af Íslenska kalkþörungaverksmiðjunni og nemur um 1 milljarði króna.
Kosnaður við hafnarframkvæmdir á Langeyri er um hálfur milljarður króna.
Heimild: BB.is












