12.200 fermetra Djúptæknisetur Vísindagarða fær grænt ljós
Áform um byggingu nýs Djúptækniseturs Vísindagarða Háskóla Íslands í Vatnsmýri hafa tekið stórt skref áfram en byggingarfulltrúi Reykjavíkur hefur samþykkt byggingarleyfismál vegna tæplega 12.200 fermetra rannsóknar- og skrifstofuhúss.
Djúptæknisetrið verður reist við Kristínargötu 3 á svæði Vísindagarða og verður ætlað að leiða saman háskóla, rannsóknastofnanir, frumkvöðla og fyrirtæki í sameiginlegri rannsóknar- og þróunaraðstöðu.
Samkvæmt gögnum byggingarfulltrúa verður húsið fjórar hæðir auk kjallara og alls 12.199,6 fermetrar að stærð.
Rúmmál hússins verður um 56.983 rúmmetrar og gert er ráð fyrir 55 bílastæðum.
Rannsóknir og fyrirtæki undir sama þaki
Vísindagarðar lýsa Djúptæknisetrinu sem samstarfsvettvangi háskóla, stofnana og fyrirtækja þar sem hægt verður að samnýta sérhæfðan og kostnaðarsaman rannsóknarbúnað og aðstöðu.
Í húsinu verður hágæða rannsóknaraðstaða ásamt sveigjanlegri vinnuaðstöðu og sameiginlegum rýmum.
Áhersla verður meðal annars lögð á heilbrigðisvísindi og líftækni, lyfjaþróun, landbúnað og matvæli, jarðvísindi, orku og auðlindir, ofurtölvur, gervigreind og máltækni.
Vísindagarðar segja markmiðið vera að skapa samþætt umhverfi þar sem rannsóknir, frumkvöðlastarf og atvinnulíf geti mæst á einum stað.
Undirbúningur staðið yfir frá 2021
Undirbúningur Djúptæknisetursins hófst árið 2021 og stjórn Vísindagarða tók árið 2023 ákvörðun um að hefja undirbúning að byggingu sérhæfðs rannsóknarhúss.
Ákvörðunin var háð því að Háskóli Íslands kæmi inn í verkefnið sem kjölfestuaðili. Háskólaráð samþykkti þátttöku skólans í desember sama ár.
Byggingarnefnd Djúptækniseturs tók síðan til starfa árið 2024.
Vísindagarðar ákváðu að byggingin yrði framkvæmd með hefðbundinni útboðsaðferð og verkefninu skipt í nokkra útboðsáfanga.
Við undirbúning útboðsferlisins var meðal annars horft til verklags Nýs Landspítala. Vísindagarðar fengu heimild til að nýta gögn NLSH við undirbúning verkefnisins og Fjársýsla ríkisins sá um birtingu forvals- og útboðsgagna.
Forval og útboð vegna verkefnisins fór fram árið 2024 en hönnun og frekari útfærsla hófst árið 2025.
Alvotech lýst yfir áhuga á aðstöðu í húsinu
Alvotech, Háskóli Íslands og Vísindagarðar hafa jafnframt undirritað viljayfirlýsingu um samstarf vegna Djúptæknisetursins.
Alvotech hefur lýst yfir áhuga á að nýta rannsóknarinnviði setursins þegar starfsemi þar hefst.
Samhliða hefur verið komið upp aðstöðu fyrir Háskóla Íslands og sprotafyrirtæki á sviði iðnaðarlíftækni í Frumunni við Klettagarða 6.
Sú starfsemi er hugsuð sem eins konar undanfari þess samstarfsumhverfis sem síðar verður byggt upp í Djúptæknisetrinu.
Stefnt að opnun árið 2029
Samkvæmt nýjustu upplýsingum Vísindagarða er gert ráð fyrir að Djúptæknisetrið opni um mitt ár 2029.
Vísindagarðar vinna nú jafnframt að útfærslu leigumódels fyrir rannsóknaraðstöðu og annan rekstur hússins og hafa óskað eftir áhuga fyrirtækja og annarra aðila sem gætu viljað koma með starfsemi inn í setrið.
Með afgreiðslu byggingarleyfismálsins færist verkefnið enn nær framkvæmdastigi eftir margra ára undirbúning, forval, útboð og hönnun.
Heimild: Reykjavik.is
Efni: 12.200 fermetra Djúptæknisetur Vísindagarða fær grænt ljós












