Framkvæmdir við rannsóknahús Nýs Landspítala
Góður gangur er í framkvæmdum við rannsóknahúsið. „Lokið hefur verið við uppsetningu stálvirkis fyrir þakgluggann yfir miðrýminu og nú stendur yfir uppsetning handriða í miðrými hússins. Samhliða því gengur þakfrágangur vel og vesturhluti hússins er að mestu fullfrágenginn hvað þann verkþátt varðar,“ segir Árni Kristjánsson, staðarverkfræðingur hjá NLSH.
Einnig hefur uppsetningu utanhússklæðningar verið lokið á öllu húsinu og frárennslislagnir eru að mestu komnar upp. Áfram er unnið að frágangi þaka og öðrum verkþáttum sem tengjast lokun byggingarinnar og tryggja að hún verði vatnsheld.

Þessir áfangar marka mikilvægt skref í framvindu verksins og skapa forsendur fyrir auknum innanhússframkvæmdum á næstu misserum. Jafnframt stendur nú yfir útboð vegna innanhússfrágangs rannsóknahússins og opnun tilboða verður í september. Útboðið markar mikilvægan áfanga í áframhaldandi uppbyggingu hússins.
Heimild: NLSH ohf.












