
Viðhald á brúnni yfir Jökulsá á Fjöllum hefst að nýju í næstu viku
Brúin verður að mestu lokuð alla virka daga frá næsta mánudegi og líklega fram í miðjan september. Bílum verður hleypt yfir brúna nokkrum sinnum á dag. Hún verður opin um helgar og frá 19 á kvöldin til 8 á morgnana.
Brúin yfir Jökulsá á Fjöllum við Grímsstaði á þjóðvegi 1, hringveginum, verður lokuð fyrir umferð hluta dagsins frá og með mánudeginum 17. ágúst vegna viðhaldsvinnu.
Gert er ráð fyrir að unnið verði fram í miðjan september svo hægt sé að ljúka þeim verkefnum sem til stóð að klára í sumar, en aðgerðirnar eru háðar veðri. Vegagerðin greinir frá þessu í tilkynningu.
Unnið verður alla virka daga frá klukkan 8 á morgnana til klukkan 19 á kvöldin. Á þessu tímabili verður opnað fyrir umferð fjórum sinnum á dag. Ekki er hægt að sinna viðhaldsvinnu að nóttu til því þá er loftraki of hár.
Á þessum tímum verður opið fyrir umferð um brúna:
09:45 – 10:15
12:00 – 13:00
14:45 – 15:15
16:45 – 17:15
Opið verður frá því að vinnu lýkur um kvöldmatarleytið og þar til vinna hefst að morgni á virkum dögum en allan sólarhringinn um helgar.
Í tilkynningu Vegagerðarinnar segir að lokanir ættu ekki að hafa mikil áhrif á neyðarflutninga. Hægt verður að opna fyrir umferð um brúna með skömmum fyrirvara.
„Brúin var byggð árið 1947 og burðarþolið hefur minnkað í áranna rás. Ryðmyndun í köplum er orðin nokkur og því afar mikilvægt að stöðva þá þróun með því að klára þessa vinnu fyrir veturinn.“
Heimild: Ruv.is
Efni: Viðhald á brúnni yfir Jökulsá á Fjöllum hefst að nýju í næstu viku











