Home Fréttir Í fréttum Varaflugvallagjaldið skilar 1,6 milljörðum á ári

Varaflugvallagjaldið skilar 1,6 milljörðum á ári

58
0
Varaflugvallagjaldið skilar 1,6 milljörðum á ári
Yfirborð flugbrautarinnar hefur verið lagfært en bið hefur verið eftir aðflugsljósum sem fjármagna átti með varaflugvallagjaldi. Mynd: GG

Varaflugvallagjaldið skilar 1,6 milljörðum á ári

Varaflugvallagjald, sem komið var á frá og með árinu 2024 til framkvæmda á öðrum alþjóðaflugvöllum en í Keflavík, hefur numið um 1,6 milljörðum árlega. Ekki hefur þó enn tekist að framkvæma fyrir sömu upphæð.

Þetta kemur fram í minnisblaði fjármálaráðuneytisins til fjárlaganefndar Alþingis frá því í sumar. Alþingi samþykkti að leggja gjaldið á sumarið 2023 og hófst gjaldtakan í byrjun árs 2024. Innheimtar eru 200 krónur á hvern flugfarþega sem kemur til Íslands. Gjaldið á að fara til framkvæmda á flugvöllunum í Reykjavík, Akureyri og Egilsstöðum.

Árið 2024 innheimtist tæpur 1,6 milljarður króna en aðeins meira árið 2025. Hvorugt árið var þó gert ráð fyrir þessari upphæð til framkvæmda. Mismunurinn árið 2024 var 244 milljónir og 220 milljónir árið eftir. Þetta er skýrt með því að gerð hafi verið 200 milljóna hagræðingarkrafa á fjárlagaliðinn. Við aðra umræðu um fjárlög þessa árs var bætt við 248 milljónum í framkvæmdir.

Minna gert en áætlað var

En þótt reiknað hafi verið með framkvæmdum þá er það ekki svo að þær hafi komist til framkvæmda og peningunum þar með verið eytt. Á samgönguáætlun fyrir árið 2024 voru áætlaðar flugvallarframkvæmdir fyrir 1,3 milljarða en raunin var að verk voru unnin fyrir 1,15 milljarða.

Aftur var áformað að framkvæma fyrir 1,3 milljarða árið 2025 en aðeins var unnið fyrir 551 milljón. Í minnisblaðinu fylgir sú skýring að kostnaður geti færst milli ára ef verk tefjast, en það sé þá búið að áætla fyrir honum. Það virðist vera reyndin því umfangsmiklar framkvæmdir á Reykjavíkurflugvelli hafa dregist vegna skipulagsvinnu.

Það á við um bæði nýja flugstöð, sem áætlað var að setja 1,1 milljarð í en búið er að fjárfesta fyrir 134 milljónir, og fjarstýrðan flugturn sem áætlaðar hafa verið 375 milljónir í en búið er að bókfæra 93,5 milljónir. Ný aðflugsljós á flugvöllunum þremur eru annað dæmi þar sem hönnunarvinnan hefur tafist.

Flugbrautirnar á Egilsstöðum og Akureyri lagaðar

Á Egilsstöðum er búið að framkvæma fyrir 67 milljónir. Mestu munar þar um 63 milljónir sem eytt var í yfirborðsviðhald flugbrautarinnar, sem er verk sem virðist hafa verið flýtt miðað við varla var neitt áætlað í það. Þá hefur fjórum milljónum verið varið í ljósabúnað.

Fram undan á Egilsstaðaflugvelli er síðan lenging flugbrautarinnar og fjölgun flughlaða. Með samþykkt samgönguáætlunar í júní var hægt að fara af stað í það verk en áformað hafði verið að hefja jarðvegsvinnu á þessu ári. Hvort af því verði er enn óvíst því verkið hefur ekki enn verið boðið út. Isavia gerði hins vegar verktakakönnun í vor til að flýta fyrir og þar er unnið að undirbúningi útboðsins sjálfs.

Stærsta einstaka framkvæmdin var yfirborðsviðhald á Akureyri sem kostaði 500 milljónir króna. Ráðist var í það árið 2024. Þá voru aðeins 200 milljónir á áætlun í verkið.

Í minnisblaðinu segist fjármálaráðuneytið fylgjast vel með innheimtu varaflugvallagjaldsins og fylgja því fast eftir að það skili sér í framkvæmdum á varaflugvöllunum.

Heimild: Austurfrett.is

Efni: Varaflugvallagjaldið skilar 1,6 milljörðum á ári