Home Fréttir Í fréttum 01.08.2018 Menntaskólinn við Sund og Fjölbrautaskólinn í Breiðholti – þjónustusamningur um raflagnir

01.08.2018 Menntaskólinn við Sund og Fjölbrautaskólinn í Breiðholti – þjónustusamningur um raflagnir

661
0
Mynd: Ruv.is

Ríkiseignir óska eftir rafvirkjum til að taka þátt  í  örútboði vegna Þjónustusamnings um endurbætur og viðhald raflagna í Menntaskólanum við Sund og Fjölbrautaskólanum í Breiðholti. Verkefnið felst í almennu viðhaldi á raflögnum, tilfallandi breytingum og endurbótum, allt eftir þörfum á hverjum tíma.

<>

Gefa skal verð í 1500 tíma í dagvinnu og  150 tíma í yfirvinnu. Einnig skal gefa verð í 100 ferðir í akstur innanbæjar vegna efniskaupa.

Þeir sem hafa áhuga á að fá send gögn og taka þátt í örútboðinu eru beðnir um að senda póst á utbod@rikiseignir.is

Tilboð verða opnuð hjá Ríkiseignum, Borgartúni 7a, 105 Reykjavík, þriðjudaginn 1. ágúst 2017 kl. 14:00.