Vegagerðin óskar eftir tilboðum í Fræsing og afrétting vega á Austursvæði og Suðursvæði á árinu 2017.
Helstu magntölur eru:
– Þurrfræsing 42.700 m2
– Efra burðarlag 2.850 m3
– Tvöföld klæðing 42.700 m2
– Klæðing, flutningur malar 1.300 m3
– Flutningur bindi og viðloðunarefnis 300 tonn
– Lögn stálröra D=1,0-1,9 m 12 m
Verki skal að fullu lokið 20. september 2017.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Búðareyri 7, 730 Reyðarfirði, Breiðumýri 2, 800 Selfoss og Borgartúni 7, 105 Reykjavík (móttaka) frá og með miðvikudeginum 12. júlí 2017.
Verð útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 25. júlí 2017 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 sama dag.