Home Fréttir Í fréttum 18.07.2017 Borgarholtsskóli og Fjölbrautaskólinn við Ármúla – þjónustusamningur um raflagnir

18.07.2017 Borgarholtsskóli og Fjölbrautaskólinn við Ármúla – þjónustusamningur um raflagnir

260
0
Fjölbrautaskólinn við Ármúla

Ríkiseignir óska eftir rafvirkjum til að taka þátt  í  örútboði vegna Þjónustusamnings um endurbætur og viðhald raflagna í Borgarholtsskóla og Fjölbrautaskólanum við Ármúla. Verkefnið felst í almennu viðhaldi á raflögnum, tilfallandi breytingum og endurbótum, allt eftir þörfum á hverjum tíma.

<>

Gefa skal verð í 1300 tíma í dagvinnu og 150 tíma í yfirvinnu. Einnig skal gefa verð í 100 ferðir í akstur innanbæjar vegna efniskaupa.

Þeir sem hafa áhuga á að fá send gögn og taka þátt í örútboðinu eru beðnir um að senda póst á utbod@rikiseignir.is

Tilboð verða opnuð hjá Ríkiseignum, Borgartúni 7a, 105 Reykjavík, þriðjudaginn 18. júlí 2017 kl. 14.00.