Home Fréttir Í fréttum Framkvæmdir við Krýsuvíkurgatnamót ganga vel

Framkvæmdir við Krýsuvíkurgatnamót ganga vel

148
0

Framkvæmdir við mislæg gatnamót Reykjanesbrautar við Krýsuvíkurveg ganga vel og eru á áætlun en að mestu er lokið 1. áfanga sem felst í því að færa lagnir svo mögulegt verði að byggja brúna fyrir hin mislægu vegamót annars vegar og hins vegar að opna framhjáhlaup svo vinna megi við nefnda brú.

<>

Annar áfangi hefst með því að Reykjanesbrautin er tekin í sundur og grafið er fyrir nýrri brú. Unnið er að brúarbyggingu í beinu framhaldi. Unnið er að veg- og gatnagerð; Suðurbrautartengingu, Selhellutengingu, ásamt að- og fráreinum, hringtorgi að norðan og hluta af hringtorgi að sunnan

Mislæg gatnamót við Krýsuvíkurveg - Mynd: Vegagerðin
Mislæg gatnamót við Krýsuvíkurveg – Mynd: Vegagerðin

Á vef Vegagerðarinnar kemur fram að í lok þessa áfanga verði Reykjanesbrautin endurgerð yfir nýja brú með öllum frágangi svo sem lýsingu, vegriði og vegmerkingum og umferð færð af framhjáhlaupinu á brautina.

22.01.2017 mislæg gatnamót Reykjanesbraut1

Vegna vinnu við sprengingar á framkvæmdasvæðinu þarf að stöðva umferð á Reykjanesbraut í skamman tíma, allt að þrisvar sinnum á dag. Vegfarendur eru beðnir að sýna aðgát og virða merkingar við vinnusvæðið. Þá er hámarkshraði á svæðinu 50 km/klst.

Krýsuvíkurvegi hefur verið lokað tímabundið, milli Rauðhellu og hringtorgs við Hraunhellu / Hringhellu. Merkt hjáleið er um Rauðhellu og Hringhellu á meðan lokun Krýsuvíkurvegar varir.

Heimild: Suðurnes.net