Home Fréttir Í fréttum Byggingaráform ógna langtímamælingum Veðurstofunnar

Byggingaráform ógna langtímamælingum Veðurstofunnar

83
0
mynd/Þórður Arason/Veðurstofan

Fyrirhuguð íbúðauppbygging á lóð Veðurstofunnar gæti þýtt að 45 ára samfelldri langtímamælingu hennar í Reykjavík verði kastað fyrir róða. Sérfræðingur Veðurstofunnar líkir þessu við „skemmdarverk“ á mæliröðinni. Aðstoðarmaður fjármálaráðherra segir ekki hafa verið ákveðið að byggja á reitnum.

<>

Samfelldar veðurathuganir hafa verið gerðar í mælistöðinni sem er austan við Veðurstofuna í áratugi. Halldór Björnsson, hópstjóri veðurs og loftslags hjá Veðurstofunni, segir að langtímamæliröðin í Reykjavík hafi verið stöðug á þessum sama stað frá 1973. Upplýsingar um hitamet í Reykjavík komi til að mynda frá mælistöðinni.

Samanburðarhæfar langtímamælingar eru nauðsynlegar, ekki síst nú á tímum loftslagsbreytinga á jörðinni. Því er ómetanlegt að hafa mælistöð sem hefur verið óbreytt á sama stað í lengri tíma. Halldór segir að slíkar stöðvar séu tiltölulega sjaldgæfar í heiminum.

„Það er í grundvallaratriðum þannig að til að hafa samanburðarhæfar mælingar þá viltu hafa röð þar sem engu eða sem minnstu hefur verið breytt. Það að mála skýli eða opna það á öðrum tíma dags en áður er vandamál. Um leið og maður færir stöðina þarf maður að byrja upp á nýtt,“ segir Halldór um hversu viðkvæmar þessar langtímamælingar eru fyrir breytingum.

Borgarstjóri stefnir á framkvæmdir strax á næsta ári
Nú er hins vegar útlit fyrir að nágrenni mælstöðvarinnar verði raskað með ófyrirséðum áhrifum á mæliröðina. Viljayfirlýsing sem ríkið og Reykjavíkurborg undirrituðu fyrir helgi felur meðal annars í sér skipulagningu undir tvö þúsund íbúðir á ríkisjörðum í borginni. Veðustofan stendur á einni þeirra jarða.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, sagði að hann vonaðist til að framkvæmdir við íbúðirnar gætu hafist strax á næsta ári svo þær gætu komist á markaðinn árið 2019 eða 2020 samkvæmt frétt RÚV af viljayfirlýsingunni.

Halldór Björnsson, hópstjóri veðurs og loftslags á Veðurstofu Íslands.

Þurfa minnst sjö ára samanburðarmælingar fyrir flutning
Halldór bendir aftur á móti á að hvorki aðal- né deiliskipulag geri ráð fyrir íbúðabyggð á Veðurstofureitnum. Gagnrýnir hann hversu brátt áformin beri að.  Enginn hafi minnst á þetta við þá sem starfa við mælingarnar og úrvinnslu þeirra á Veðurstofunni.

Hann bendir á að til þess að halda samfellunni í langtímaröðinni og valda ekki óbætanlegum skaða á henni þurfi fyrst að gera samanburðarmælingar á öðrum stað samhliða þeim sem nú er eru gerðar, helst yfir að minnsta kosti sjö ára skeið. Ekki sé hægt að færa stöðina þannig á nokkrum mánuðum.

„Það er mjög stórt mál ef menn ætla sér allt í einu að gjörbreyta umhverfi reitsins á einu eða tveimur árum. Það er í raun og veru bara skemmdarverk á röðinni,“ segir Halldór.

Borgin spurði sérstaklega um lóðina
Í svari Benedikts Jóhannessonar, fjármálaráðherra, við skriflegri fyrirspurn Eyglóar Harðardóttur, þingmanns Framsóknarflokksins, á Alþingi kom fram að borgaryfirvöld hafi spurst fyrir um Veðurstofulóðina sérstaklega.

Gylfi Ólafsson, aðstoðarmaður fjármálaráðherra. mynd/Fjármálaráðuneytið

Ráðuneytið hafi bent á að Veðurstofan væri með umfangsmiklar veðurmælingar á lóð stofnunarinnar og að gera mætti ráð fyrir að byggingarframkvæmdir á reitnum yllu umtalsverðri röskun á áratugalöngum mælingum.

Útilokaði ráðuneytið þó ekki að skoða það mál í samráði við Veðurstofuna með þeim fyrirvara að borgin fyndi veðurmælingum stofnunarinnar annan hentugan stað og tæki þátt í þeim kostnaði sem slíkur flutningur hefði óhjákvæmilega í för með sér.

Ýmsar ástæður fyrir að ekki hefur verið byggt á ríkisjörðunum
Gylfi Ólafsson, aðstoðarmaður fjármálaráðherra, segir við Vísi að á þessu stigi málsins liggi aðeins viljayfirlýsing fyrir um að borgin kaupi ríkisjarðirnar til íbúðauppbyggingar. Ástæða sé fyrir því að ekki hafi verið byggt á sumum þessara jarða, til dæmis í tilfelli Veðurstofureitsins.

Ekki komi fram í viljayfirlýsingunni að byggt verði á Veðurstofureitnum. Segir Gylfi að það mál verði skoðað.
Ekki náðist strax samband við Hjálmar Sveinsson, formann umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar, við vinnslu fréttarinnar.

Heimild: Visir.is