Home Fréttir Í fréttum 13.06.2017 Suðurlandsbraut milli Engjavegar og Langholtsvegar. Göngu- og hjólastígar

13.06.2017 Suðurlandsbraut milli Engjavegar og Langholtsvegar. Göngu- og hjólastígar

124
0

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í verkið:

<>

Suðurlandsbraut milli Engjavegar og Langholtsvegar. Göngu- og hjólastígar. Útboð 13995.

Útboðsgögn verða  eingöngu  aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá þriðjudeginum 30. maí 2017 á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is

Finna má leiðbeiningu um nýskráningu fyrirtækja á vefslóðinni http://reykjavik.is/utbodsauglysingar – Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella
„New supplier registration“ og fylgja leiðbeiningum á skjá.

Vakin er athygi á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en:  Kl. 10:00 þriðjudaginn 13. júní 2017.

Verkið felst í:
• Gerð hjólastígs við hlið núverandi göngustígs frá Engjavegi að Álfheimum. Einnig er verið að aðlaga núverandi stíg á köflum, bæði í plani og hæð.
• Gerð göngustígs við hlið núverandi stígs milli Álfheima og Skeiðarvogar ásamt færslu á bekkjum og gerð nýs áningastaðar. Lagfæringar á núverandi stíg á köflum.
• Gerð stoðveggjar meðfram göngu- og hjólastígs á lóðarmörkum Olís.
• Gerð hjólastíg við hlið núverandi göngustígs frá Skeiðarvogi að Langholtsvegi.
• Breyting gatnamóta Álfheima og Suðurlandsbrautar.
• Götulýsing við stíga.
• Færsla og niðursetning niðurfalla og grjótsvelgja.
• Færsla brunahana.
• Niðurtekt, fjarlæging og færsla gróðurs ásamt frágangi og ræktun á framkvæmdasvæðinu.

Helstu magntölur eru:
• Uppúrtekt:    3500 m3
• Fyllingar:    3200 m3
• Mulningur:   3800 m2
• Malbik:    3600 m2
• Hellulögn:   330 m2
• Jarðstrengir:   1150 m
• Ljósastólpar:    37 stk
• Þökulögn:   1200 m2
• Gróðursetning:    1843 stk
• Steypumót:    180 m2
• Steypa:     45 m3
• Stálvirki   5100 kg

Lokaskiladagur verksins er 1. nóvember 2017.