Búið er að opna tilboð í viðbyggingu að Eyjahrauni 1. Eitt tilboð barst frá Steina og Olla ehf. og hljóðaði það upp á kr.194.420.160. Frá þessu er greint í fundargerð framkvæmda- og hafnarráðs.
Fram kom í máli framkvæmdastjóra að eftir er að yfirfara tilboðið og meta kostnaðartölur. Ráðið felur framkvæmdastjóra að fara yfir og meta tilboðið. Ráðið mun taka afstöðu að því loknu.
Heimild: Eyjar.net