3.5.2017
Tilboð opnuð 2. maí 2017. Gerð nýs Hringvegar yfir Morsá um farveg Skeiðarár. Vegarkaflinn sem verður 2,86 km að lengd mun leysa af hólmi Skeiðarárbrú og liggur norðan við núverandi veg með nýrri brú yfir Morsá, en hún er tilbúin til notkunar.
Helstu magntölur eru:
- – Fylling 70.400 m3
- – Fláafleygar 30.800 m3
- – Lenging og endurlögn ræsa 105 m
- – Styrktarlag 10.500 m3
- – Burðarlag 5.000 m3
- – Tvöföld klæðing 22.000 m2
- – Rofvörn 4.100 m3
Lögn klæðingar skal lokið fyrir 1. september 2017. Verkinu skal að fullu lokið 15. september 2017.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik þús.kr. |
Suðurverk ehf., Kópavogi | 195.220.000 | 129,4 | 76.881 |
IJ Landstak ehf., Selfossi | 156.928.000 | 104,0 | 38.589 |
Áætlaður verktakakostnaður | 150.858.000 | 100,0 | 32.519 |
Jökulfell ehf., Selfossi | 138.303.900 | 91,7 | 19.964 |
Héraðsverk ehf., Egilsstöðum | 118.339.460 | 78,4 | 0 |