Umhverfissvið Mosfellsbæjar óskaði eftir tilboðum í verkið: Fossatunga – Gatnagerð og veitur 2017 og tilboð voru opnuð í apríl. Um er að ræða nýja götu sem nefnd hefur verið Fossatunga sem staðsett er í nokkuð grónu hverfi í Leirvogstungu í Mosfellsbæ.
Helstu verkþættir eru að ljúka vinnu við gatnagerð, rif á húsi og jarðvinna vegna veitukerfa á svæðinu.
Eftirfarandi tilboð bárust:
Steinmótun ehf | 84.366.474 kr. | 93% |
Hellubjarg ehf | 87.961.896 kr. | 97% |
Jarðbrú ehf & Óskarverk ehf | 118.334.833 kr. | 131% |
Kostnaðaráætlun | 90.412.887 kr. | 100% |