Home Fréttir Í fréttum Tóku fyrstu skóflustunguna að nýju alhliða íþróttahúsi í Grafarvogi

Tóku fyrstu skóflustunguna að nýju alhliða íþróttahúsi í Grafarvogi

182
0
Reykjavíkurborg

Fyrsta skóflustungan var í gær tekin að nýju alhliða íþróttahúsi við Egilshöll í Grafarvogi.

<>

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, Helgi S. Gunnarsson, forstjóri Regins, Sunna Hrönn Sigmarsdóttir, framkvæmdastjóri Egilshallar og Jón Karl Ólafsson, formaður Fjölnis  ásamt fulltrúum og íþróttafólki frá Fjölni tóku skóflustunguna.

Gert er ráð fyrir að nýbyggingin verði tekin í notkun í byrjun næsta árs og nemur kostnaðaráætlun byggingarinnar um 780 milljónum króna. Vísir/Ernir
Gert er ráð fyrir að nýbyggingin verði tekin í notkun í byrjun næsta árs og nemur kostnaðaráætlun byggingarinnar um 780 milljónum króna. Vísir/Ernir

Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg kemur fram að með íþróttahúsinu, sem verður 2.500 fermetrar að stærð, sé verið að bæta og efla valkosti til íþróttaiðkunar í Egilshöll og efla starf Fjölnis og annarra íþróttafélaga.

Gert er ráð fyrir að nýbyggingin verði tekin í notkun í byrjun næsta árs og nemur kostnaðaráætlun byggingarinnar um 780 milljónum króna.

„Húsið rúmar tvo handbolta- og körfuboltavelli en þar fá körfuknattleiks- og handboltadeildir æfinga- og keppnisaðstöðu, Borgarholtsskóli fær aðstöðu fyrir afreksíþróttabraut ásamt öðru íþróttastarfi.

Fjölnir er þegar með fimleikahús, karateaðstöðu, knatthús og   fótboltavelli utanhúss  ásamt skrifstofu- og félagsaðstöðu. Að mati forsvarsmanna Fjölnis er verið að stíga stórt skref í framtíðaruppbyggingu félagsins í Egilshöll með hinu nýja húsi. Reykjavíkurborg leigir meirihluta tíma í hina nýja húsi fyrir fjölbreytt íþróttastarf Fjölnis og fleiri félaga.

Sameiginlegt rekstrarfélag tryggi afkomu hússins

Kostnaðaráætlun byggingarinnar nemur um 780 milljónum króna. Reginn byggir íþróttahúsið og mun einnig sjá um rekstur þess. Félagið mun afla hluta nauðsynlegra leigutekna vegna fjárfestingarinnar frá þriðja aðila.  Arkitekt hússins eru Alark arkitektar og verkfræðihönnun og verkefnisstjórn annaðist Verkís hf.

Reykjavíkurborg
Reykjavíkurborg

Reginn og Fjölnir hafa sammælst um stofnun rekstrarfélags með það að markmiði að tryggja afkomu hins nýja íþróttahúss. Hluta tekna verður varið til að efla almenna íþróttastarfsemi í Egilshöll og starfsemi Fjölnis. Ennfremur verður Fjölnir gerður sýnilegri í húsinu með tilfærslu á skrifstofu og félagsaðstöðu félagsins í anddyri Egilshallar,“ segir í tilkynningunni.

Heimild: Visir.is