Home Fréttir Í fréttum 04.05.2017 Hólabrekkuskóli áfangi 4. Endurnýjun veðurkápu 2017

04.05.2017 Hólabrekkuskóli áfangi 4. Endurnýjun veðurkápu 2017

107
0

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í verkið:
Hólabrekkuskóli áfangi 4 – Endurnýjun veðurkápu 2017. Útboð nr. 13980.

<>

Útboðsgögn verða  eingöngu  aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá kl. 13:00, miðvikudaginn 12. apríl 2017 á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is    Nauðsynlegt er að nota  Internet Explorer.

Finna má leiðbeiningu um nýskráningu fyrirtækja á vefslóðinni http://reykjavik.is/utbodsauglysingar – Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella „New supplier registration“ og fylgja leiðbeiningum á skjá.

Vakin er athygi á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar.   Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en:  kl. 10:00 fimmtudaginn 4. maí 2017.

Verkið felst í:
Endurnýjun veðurkápu á 4. áfanga Hólabrekkuskóla við Austurberg. Fjarlægja skal núverandi flísaklæðningu af húsinu, múra veggina og mála. Þá skal einnig endurnýja flóttahurðir úr áli og framkvæma nauðsynlegar lagfæringar á álgluggakerfi.

Helstu magntölur eru:
Fjarlæging og förgun flísa         588 m²
Múrhúðun                                  588 m²
Endurnýjun á flóttahurðum         4 stk
Sílanböðun                                588 m²
Málun veggja                             588 m²

Verklok eru 18. ágúst 2017.