Home Fréttir Í fréttum Samþykkja 60 milljónir í viðbótarfjárveitingu til þess að malbika í Garðabæ

Samþykkja 60 milljónir í viðbótarfjárveitingu til þess að malbika í Garðabæ

101
0
Séð yfir Garðabæ

Ástand yfirborðs gatna í Garðabæ hefur versnað mikið í vetur og er nú töluvert meira af götum sem þarfnast endurnýjunar og viðgerðar en gert var ráð fyrir á síðastliðnu ári.

<>

Bæjarstjórn Garðarbæjar hefur samþykkt að veita 60 milljónum króna í viðbótarfjárveitingu til viðhalds gatna í bæjarfélaginu og var hún samþykkt á fimmtudaginn í síðustu viku.

Það var Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðarbæjar, sem lagði fram tillöguna.

Í greinargerð með tillögunni er greint frá því að Efla verkfræðistofa hafi síðustu ár farið yfir ástand slitlags gatna á hverjum vetri og gert ástandsmat á götum Garðabæjar. Út frá þessu ástandsmati hafa verið teknar ákvarðanir um endurnýjun slitlags.

Á vorin hefur síðan verið farið í að lagfæra þær skemmdir og holur sem hafa verið á slitlögum gatna í bænum.

Ástand yfirborðs gatna í Garðabæ hefur versnað mikið í vetur og er nú töluvert meira af götum sem þarfnast endurnýjunar og viðgerðar en gert var ráð fyrir á síðastliðnu ári.

Fjárveiting ársins 2015 dugar til endurnýjunar á slitlagi á um 13 þúsund fermetrum í ár. Æskilegt er að framkvæma nánast annað eins til viðbótar. Með viðbótarfjárveitingunni sem var samþykkt á fundi bæjarstjórnar Garðabæjar er komið til móts við þá þörf.

Heimild: Dv.is