IKEA á Íslandi stendur nú fyrir byggingu fjölbýlishúss með 36 litlum og hagkvæmum leiguíbúðum í Urriðaholtinu í Garðabæ fyrir starfsfólk sitt. Einnig kemur til greina að leigja stúdentum og jafnvel starfsfólki Costco íbúðir í húsinu. Áætlað er að blokkin verði tilbúin á næsta ári.
Þórarinn Ævarsson, framkvæmdastjóri IKEA, sagði frá verkefninu á nýafstöðnu málþingi Íbúðalánasjóðs um byggingu hagkvæmra íbúða. Tilgangurinn með byggingunni er að halda í starfsfólk og mæta vanda þess fyrir húsnæði.
Þórarinn segir húsnæðismál starfsfólks einnig vera mál atvinnurekenda.
„Framtíðarvígvöllur fyrirtækja í framlínurekstri, t.a.m smásölufyrirtækja, verður um hæft starfsfólk. Sá sem nær til sín og heldur hæfasta starfsfólkinu stendur uppi sem sigurvegari. Við höfum ítrekað orðið fyrir því að hæft starfsfólk hefur látið af störfum hjá okkur vegna vandamála sem tengjast húsnæði á einn eða annan hátt,“ sagði Þórarinn meðal annars í erindi sínu.
„Fólk hefur hætt hjá okkur af því að það hefur þurft að flytja og endað á stað þar sem það nær ekki lengur strætó í vinnuna. Ef manni er annt um starfsfólkið sitt þá vill maður aðstoða það á þessum erfiða húsnæðismarkaði.“
Minnstu íbúðirnar á 100 þúsund á mánuði
Hjá IKEA starfa 350 manns og hyggst fyrirtækið fjölga starfsfólki í 450 á næstu árum. Þórarinn sagði hátt hlutfall starfsfólksins vera ungt fólk eða innflytjendur og væru margir á hrakhólum varðandi húsnæði.
Fjölbýlishúsið sem IKEA hyggst láta reisa mun standa við Urriðaholtsstræti 10-12. Fasteignafélag tengt fyrirtækinu á og rekur húsið og gert er ráð fyrir að það verði tilbúið á síðari hluta næsta árs. Um er að ræða fimm hæða hús þar sem fjórar efstu hæðirnar eru með smáíbúðum en sú neðsta er atvinnuhúsnæði í bland við geymslur fyrir íbúðirnar á efri hæð.
Leiguverð minnstu íbúðanna verður undir 100 þúsund krónum. „Það er minna en fólk er að greiða fyrir greni hér og þar í bænum,“ segir Þórarinn.
Heimild: Visir.is