Home Fréttir Í fréttum 19.04.2017 Opin leiksvæði 2017. Spóahólar/Stelkshólar og Ugluhólar/Súluhólar. Jarðvinna.

19.04.2017 Opin leiksvæði 2017. Spóahólar/Stelkshólar og Ugluhólar/Súluhólar. Jarðvinna.

228
0

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í verkið:
Opin leiksvæði 2017. Spóahólar/Stelkshólar og Ugluhólar/Súluhólar. Jarðvinna.  Útboð nr.  13953

<>

Útboðsgögn verða  eingöngu  aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is –  frá kl. 13:00 þriðjudaginn 4. apríl 2017.

Finna má leiðbeiningu um nýskráningu fyrirtækja á vefslóðinni http://reykjavik.is/utbodsauglysingar – Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella
„New supplier registration“ og fylgja leiðbeiningum á skjá.
Vakin er athygi á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar.   Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en:  kl. 10:30 þann 19. apríl 2017.

Lauslegt yfirlit yfir verkið
Verkið felst í endurgerð þriggja opinna leiksvæða við Spóahólar/Stelkshólar og Ugluhólar/Súluhólar. Um er að ræða fullnaðarfrágang á viðkomandi svæðum með yfirborðsefnum. Helstu verkliðir eru jarðvinna, landmótun, hellulögn og frágangur gras- og gróðursvæða. Verkkaupi leggur til leiktæki, fallvarnarefni, gervigras, ljósastólpa, lampa og jarðstrengi.
Helstu magntölur:
Gröftur          260 m3
Fyllingar       150 m3
Hellulögn      240 m2